
Nína er klassískur, tvíhnepptur frakki með víðum ermum og mjúkum línum yfir axlir. Jakkinn er hannaður með nokkuð víðum ermum, stuttu stykki að aftan og belti í mittið. Allir saumar eru hvítir sem gefa frakkanum nútímalegt útlit. Efnið er sterk bómullarblanda sem hentar vel í íslensku veðri enda hrindir það frá sér vatni. Fóðrið er úr þægilegu viskósi sem andar vel.
- 35% Bómull // 65% Polyester
- Framleiddur í Litháen
- Efni frá Þýskalandi
- Tölur frá Þýskalandi
- Fóður er 100% Viskós frá Ítalíu
- Má þvo í vél við 40°c
- Módel er 178 og er í stærð S