
Tryggvi er léttur jakki innblásinn af hinum klassíska "Mac jakka" Hnepptur að framan með tvo hliðarvasa. Fráganslistar innan í jakkanum eru í skærum litum. Jakkinn er gerður úr þykkri og endingargóðri bómull sem hefur verið meðhöndluð þannig að hún er vatnsfælin. Bómullinn í efninu er umhverfisvæn og vottuð af BCI ásamt því að hið vatnsfælna efni er án PFC efna.
- 97% Bómull // 3% elastan
- Framleitt í Litháen
- Efni frá Ítalíu
- Efni hrindir frá sér vatni
- Hreinsun eða handþvottur
- Model er 191 cm á hæð og er í stærð M