
Ullarpeysa með mynstri úr nýjustu fatalínu okkar, "Fýkur Yfir Hæðir". Mynstrið er innblásið af skúlprúrverkum Ásmundar Sveinssonar en línan var innblásin af Reykjavík og listaverkum Ásmundar um borgina. Sniðið hentar vel hverjum báðum kynjum, er vítt, stutt og með víðan armveg.
Peysan er framleidd hjá Glófa í Reykjavík en í samvinnu við þau notuðum við nýtt íslenskt lambsullarband framleitt hjá Ístex í Mosfellsbæ. Bandið er spunnið úr íslenskri lambsull í náttúrulegum litum í bland við hágæða merino ull fyrir extra mýkt.
- 80% Íslenskt lambsullarband // 20% Merino ull
- Framleidd á Íslandi
- Garn frá Íslandi
- Handþvottur, leggið flatt til þerris
- Módel er 191 cm og er í stærð M