
Snið Fjögur eru afslappaðar gallabuxur úr þvegnu gallaefni sem gefur þeim ljósbláan blæ. Buxurnar eru hannaðar til að hanga á mjöðmum og eru innblásnar af svokölluðu "boyfriend fit" gallabuxum, með langar og víðar skálmar.
Buxurnar eru gerðar úr vönduðu spænsku gallaefni og framleiddar á Norður-Ítalíu hjá litlu fjölskyldufyrirtæki sem hefur áratuga reynslu af framleiðslu á gallabuxum og fatnaði úr gallaefnum.
Gallabuxurnar okkar þekkjast á grænbláu saumunum við rassvasana og á innanverðum skálmum.
- 100% Bómull
- 14 OZ
- Framleiddar á Ítalíu
- Efni frá Spáni
- Módel er 175 cm og er í stærð 24